Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi starf og þroska barna. Haltu áfram í hagnýtu og eflandi námi fyrir starfsfólk leikskóla.
26. jan 2026 - 31. maí 2026
Á fagnámskeiðum Mímis er lögð rík áhersla á að styrkja persónulega og starfstengda færni. Markmiðið er að efla sjálfstraust þitt og veita þér hagnýt verkfæri til að takast á við fjölbreytt verkefni í starfi. Námskeiðið er tækifæri fyrir þig til að dýpka þekkingu þína og vaxa enn frekar sem fagmanneskja.
Í náminu munt þú kynnast og vinna með:
Einnig er farið í heimsóknir í leikskóla til að fá verðmæta innsýn í og kynnast starfsemi þeirra.
Námið er fyrir þau sem starfa á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Athugið: Í undantekningartilfellum er heimilt að taka inn í námið starfsfólk á aldrinum 18-20 ára ef það er í fullu starfi.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs.
Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
Námið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu er mælt með að þú hafir hæfni á a.m.k. stigi A2–B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Þú getur skoðað rammann betur hér.
Ef að þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.
Undanfari þessa námskeiðs er Fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk leikskóla.
Frekari upplýsingar:
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800