26. jan 2026 - 31. maí 2026

Starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu – Fagnámskeið 1

Á námskeiðinu er lögð áhersla á starfstengda færni og sjálfsstyrkingu. Hagnýtt og
eflandi nám fyrir þig sem starfar við umönnun á heimilum eða stofnunum

26. jan 2026 - 31. maí 2026

Kennt er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga milli kl. 12:40 og 16:00
Höfðabakki 9
Íslenska
95 klst.
Verð44.000 kr.

Irma O. Matchavariani

irma@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverf
  • Faglegir og reyndir kennara
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferði
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utanumhald

Á fagnámskeiðum Mímis fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er lögð rík áhersla á að efla persónulega og starfstengda færni þína. Við bjóðum upp á símenntun sem eflir þig til að takast á við fjölbreytt verkefni í þínu mikilvæga starfi.

Fagnámskeiðin eru sérstaklega ætluð þeim sem starfa við umönnun fólks, hvort sem um er að ræða fatlaða eða aldraða og hvort sem starfið fer fram á einkaheimilum eða stofnunum.

Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar stéttarfélags og getur opnað ný tækifæri til að styrkja þig í starfi.

  • Almenn starfshæfni – lota 1
  • Vinnustaðamenning og sjálfsstyrking – lota 1
  • Eldhússtörf og ræsting – lota 1
  • Aðstoð og umönnun við athafnir daglegs lífs – lota 1

Námið er fyrir þau sem vinna við umönnun í heilbrigðis- og félagsþjónustu, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur mælum við með því að þátttakendur hafi hæfni á a.m.k. stigi A2-B1 í íslensku skv. Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Ef þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár má nálgast hér.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit