Á námskeiðinu nærð þú enn betri tökum á að skilja og tala íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun byggir þú upp öryggi í að tjá þig reiprennandi á íslensku, bæði í samtölum og frásögn.
27. jan 2026 - 31. maí 2026
Námskeiðið Íslenska talþjálfun 3-4 er sérsniðið fyrir þig sem vilt ná betri tökum á margvíslegum samskiptum á íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á fjölbreytt verkefni og æfingar sem þjálfa framburð, samræður, málfræði og setningagerð.
Íslenska talþjálfun 3-4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1-A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Þú getur skoðað rammann betur hér.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda tryggð svo að íslenskunámið verði árangursríkt og skemmtilegt.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
**Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta. Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á auðskiljanlegri íslensku og tekið þátt í einföldum umræðum. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.
Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800