31. jan 2026 - 31. maí 2026

Íslenska 4 – fjarnám (A2.2)

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á margvíslegan máta. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

31. jan 2026 - 31. maí 2026

Microsoft TEAMS
Íslenska
40 klst.
Verð59.500 kr.

Zita Rézné Zádori

zita@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 4 fjarnám er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.*

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Námskeiðið er einstaklingsmiðað að vissu marki, byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, sem og hópavinnu nemenda. Fjarnám krefst meira sjálfstæðis frá nemendum í námi. Námskeiðið er að hluta til á netinu með kennara og að hluta til sjálfsnám með stuðningi kennarans.

Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þú getur skoðað rammann betur hér.

Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Allt námsefni er rafrænt. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk  aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

https://fraedslugatt.is/islenska-fyrir-alla-allt/

  • Byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða: Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
  • Æfa skilning og tal: Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
  • Auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku: Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
  • Fá þjálfun í lestri og ritun: Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
  • Bæta við málfræðiskilning: Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
  • Fá ráðgjöf um næstu skref: Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg þekking. Á fjórða stigi er íslenska notuð í kennslu.

Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur. Námskeiðið hentar fólki sem vill meira sjálfstæði í námi, er með grunnkunnáttu í tölvunotkun og aðgang tölvu.

  • Ókeypis stöðumat fyrir skráða nemendur: Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Mætingarskylda: Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Námskrá: Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.

Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit