Hefur þú áhuga á að vinna með börnum en þarft að læra meiri íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!
Leikskólasmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna með börnum og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.
Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í starfi á leikskóla.
2. feb 2026 - 31. maí 2026
Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur leikskólastarfi á Íslandi.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku og hefur mikinn áhuga á að vinna á leikskóla.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs
Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa lokið Íslensku 2 eða hafa færni á stigi A1.2 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þú getur skoðað rammann betur hér.
https://frae.is/namskra/allar-namskrar/
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800