2. feb 2026 - 31. maí 2026

Umönnunarsmiðja og íslenska 3

Hefur þú áhuga á að vinna við umönnun en þarft að læra meiri íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!

Umönnunarsmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna við umönnun og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.

Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í umönnunarstörfum.

2. feb 2026 - 31. maí 2026

Alla virka daga frá 9:00-15:00
Höfðabakki 9
Íslenska
128 klst. með kennara
Verð105.500 kr.

Halla Björg Randversdóttir

halla@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utanumhald

Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur umönnunarstörfum á Íslandi.

  • Læra íslensku með starfstengdri áherslu: Þú byggir upp orðaforða sem nýtist sérstaklega í starfi við umönnun.
  • Fá innsýn í starf við umönnun: Þú kynnist starfsháttum og menningu í starfi við umönnun á Íslandi sem eykur skilning þinn og gerir þig að verðmætari starfsmanni.
  • Taka þátt í skapandi vinnustofum: Í náminu er lögð er áhersla á skapandi notkun tónlistar, listkennslu og hreyfingar í starfi.
  • Fara í vettvangsnám: Þú færð fjögurra daga vettvangsnám á starfsstað þar sem þú tekur virkan þátt í daglegu starfi við umönnun. Þetta er gott tækifæri til að tengja námið við raunverulegar aðstæður.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku og hefur mikinn áhuga á að vinna við umönnun.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa lokið Íslensku 2 eða hafa færni á stigi A1.2 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

  • Þú þarft að taka stöðupróf í íslensku í Mími áður en þú sækir um námskeiðið. Prófið er ókeypis og fer fram á Höfðabakka 9 á virkum dögum frá kl. 8:00-14:30. Þú verður að panta tíma í stöðupróf fyrir fram hjá verkefnastjóra.
  • Námsmat byggist á mætingu, verkefnavinnu og virkri þátttöku í náminu.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika, auk íslenskunáms á stigi 3 með áherslu á starfstengdan orðaforða. Allar námskrár má nálgast hér.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Námskeiðshald: Athugaðu að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit