Vinnur þú við umönnun aldraðra, fatlaðra eða við heimaþjónustu?
Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?
Félagsliðagátt er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem félagsliði. Þetta er leið fyrir þig til að skapa þér ný tækifæri á þessum starfsvettvangi.
4. feb 2026 - 31. maí 2026
Félagsliðagátt er sérsniðin námsbraut fyrir þá sem vinna við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu. Í náminu er lögð rík áhersla á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni og að tengja námið við fjölbreytt störf í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:
Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.
Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.
Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur á Microsoft TEAMS þar sem nemendur hitta kennara.
1. önn
Upplýsingatækni F-UPPT2UT
Íslenska fyrir félagsliða F-ÍSLE2TT
Samvinna og samskipti F-SAMS1SS
Öldrun F-ÖLFR1ÖL
2. önn
Enska fyrir félagsliðaF-ENSK2FK
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta F-FSFÞ2FJ
Fötlun F- FÖFR1FÞ
Gagnrýnin hugsun og siðfræði F-SIÐF2GH
Óhefðbundin samskipti F- ÓHSA2ÓS
3. önn
Aðstoð og umönnun F-ASUM2UA
Félagsleg virkni F-FÉVI2FV
Lyfjafræði F-LYFJ2LF
Stærðfræði fyrir félagsliða F-STÆR2EÆ
4. önn
Kynja- og jafnréttisfræðsla F-KYNJ2KG
Næringarfræði F-NÆRG2NF
Hegðun og atferlismótun (sálfræði) F-SÁLF2HM
Skyndihjálp F-SKYN2SP
Valgrein: Öldrun og samfélag F-ÖLFR2ÖS
Námið er fyrir þau sem starfa við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs
Raunfærnimat: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi við umönnun getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.
Við hlökkum til að vinna með þér til að ná markmiði þínu.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800