Gervigreind í daglegu lífi

Langar þig að kynnast gervigreind og læra hvernig hægt er að nota hana til að einfalda og auðvelda margt í þínu daglega lífi? Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Kennt í eitt skipti
Höfðabakki 9
Íslenska
Þrjár klukkustundir
Verð13.000 kr.

Halla Björg Randversdóttir

halla@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utanumhald

Á námskeiðinu öðlast þú innsýn í hvað gervigreind er, hvernig hún virkar og hvar við sjáum hana í okkar daglega lífi. Þú færð leiðbeiningar um hvernig gervigreind getur hjálpað þér í ákveðnum verkefnum, eins og ferðaplönum, heimilisskipulagi og að finna upplýsingar á netinu. Að auki færð þú hagnýtar leiðbeiningar um hvernig hægt er að nýta einföld forrit og öpp til að auðvelda og skipuleggja dagleg verkefni.

Þetta námskeið er fyrir öll sem vilja öðlast betri skilning á gervigreind án þess að þurfa flókna tæknilega þekkingu.

Þátttakendur þurfa ekki að vera með mikla tölvukunnáttu en ættu að hafa áhuga á að kynnast nýrri tækni og hvernig hún getur auðveldað daglegt líf. Aldursviðmið í nám hjá Mími eru 18 ára og eldri

Þátttakendur fá sendan tölvupóst með öllum helstu upplýsingum viku fyrir námskeiðið.

Lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit