9. feb 2026 - 31. maí 2026

Menntastoðir fjarnám

Hefur þú áhuga á að hefja nám að nýju?

Menntastoðir er sérsniðið nám fyrir þig sem vilt ljúka fyrsta ári í námi á framhaldsskólastigi og fá námið metið inn í háskólabrú. Í náminu er lögð áhersla á góðan stuðning við nemendur og að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms. Námið hentar vel sem undirbúningur fyrir frekara nám.

9. feb 2026 - 31. maí 2026

Microsoft TEAMS
Íslenska
Alls 460 klukkustundir með kennara
Verð226.500 kr.

Sólrún Helga Guðmundsdóttir

solrun@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utan umhald

Menntastoðir er eftirsótt námsbraut sem hefur veitt mörgum ný tækifæri. Í náminu færð þú góða undirstöðu í grunnfögum, byggir upp hæfni til að læra á árangursríkan hátt og eflir sjálfstraust þitt fyrir frekara nám.

Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í undirbúningsdeildir í Háskólanum í Reykjavík, hjá Keili og Bifröst eða fara í starfs-, iðn- eða tækninám.

Í fjarnámi lýkur þú námi á tveimur önnum. Námið er fimm lotur og eru kenndar tvær námsgreinar í hverri lotu. Að auki eru tvær námsgreinar sem hvor um sig eru kenndar á einni önn. Námstækni er kennd á fyrri önn og Yndislestur á þeirri seinni.

Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar

Námið er fyrir þau sem hafa ekki lokið framhaldsskóla og eru orðin 20 ára eða eldri.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Námið fer fram á íslensku. Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa þátttakendur að hafa hæfni á stigi B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þú getur skoðað rammann betur hér.

Ef þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.

  • Námsmat og námsframvinda er metin jafnt og þétt út frá hugmyndum um leiðsagnarmat, m.a. með símati, verkefnavinnu og virkri þátttöku nemenda.
  • Lokapróf (í stærðfræði, íslensku og ensku) eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.
  • Nemendur greiða sjálfir fyrir próftöku ef að próf er tekið annars staðar en í Mími.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár má nálgast hér.
  • Námið jafngildir allt að 60 framhaldsskólaeiningum. Skólastjórnendur hvers skóla eru ábyrgir fyrir mati skólans á námi frá öðrum fræðslustofnunum.
  • Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námið fari af stað.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit