Námskeiðið er gott upphaf til að byrja að læra íslensku og þjálfa lestur og skrift. Einnig til að byggja upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Á námskeiðinu færð þú tækifæri til að læra íslensku hægt og rólega í öruggu og styðjandi námsumhverfi.
9. feb 2026 - 31. maí 2026
Námskeiðið Að lesa og skrifa á íslensku er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku, vilt læra hægar og þarft þjálfun í að lesa og skrifa latneska stafrófið. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að læra vel íslenska stafrófið og þjálfa framburð auk þess að læra grunnorðaforða daglegs máls og einfalda setningagerð.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og ólíkar leiðir til að æfa alla þætti tungumálanáms. Þessir þættir eru skilningur, lestur, skrift og talþjálfun með áherslu íslensku í daglegu lífi og sjálfsstyrkingu til að halda áfram að læra tungumálið.
Þjálfun í rafrænni færni er hluti af námskeiðinu þar sem þú færð upplýsingar um og tækifæri til að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum. Fræðslu um íslenskt samfélag er fléttað inn í námskeiðið eftir því sem hentar hópnum.
Námskeið er kennt bæði fyrir blandaða hópa og sérstaka hópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins eins og arabísku og persnesku.
Að lesa og skrifa á íslensku er nám á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenskt menntakerfi og er byrjendanámskeið í íslensku á forstigi og á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum linkur hér. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað að hluta auk sérhæfðs efnis til þjálfunar í framburði, lestrar- og skriftarkennslu, myndefnis, leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. https://fraedslugatt.is/islenska-fyrir-alla-allt/ og Orð eru ævintýri – rafbók | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 20 ára og eldra, sem vill læra íslensku, hefur litla skólagöngu og/eða er illa læst á latneskt letur.*
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.
Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800