Frekari upplýsingar eru á vefsíðu Áttunnar.

Mímir veitir fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu til að efla mannauð og ná betri árangri í rekstri. Stjórnendur fá stuðning við þarfagreiningu, stefnumótun og uppbyggingu mannauðs í takt við stefnu fyrirtækisins, með fræðslu að leiðarljósi.
Fyrirtæki sem greiða í starfsmenntasjóð geta sótt um styrki til starfsmenntunar eða námskeiða fyrir starfsmenn. Upphæð styrkja fer eftir stéttarfélagsaðild starfsmanna og reglur sjóðanna eru mismunandi. Sjóðirnir geta styrkt þarfagreiningu og niðurgreiðslu námskeiða. Starfsmenn geta einnig sótt um einstaklingsstyrki hjá stéttarfélögum.

Hjá Mími eru allar spurningar kærkomnar, endilega taktu upp símann og hringdu, sendu póst eða komdu í heimsókn.
Netfang info@mimir.is
Sími 580-1800
Heimilisfang Höfðabakki 9, 110 Reykjavík