Ertu að velta fyrir þér hvaða nám eða starf henti þér best? Áhugasviðsgreining getur hjálpað þér að kynnast þér betur og finna hvað vekur áhuga þinn. Greiningin veitir þér aukna innsýn í eigin styrkleika og áhugasvið og getur verið lykillinn að betri skrefum í námi eða starfsvali.
Við notum Bendil, gagnreynt og einfalt matstæki sem byggist á líkani Hollands um áhugasvið. Greiningin sýnir þér hvaða svið henta þér, til dæmis hvort þú hafir áhuga á að vinna með fólki, vinna hugmyndavinnu, sinna verklegum verkefnum og margt fleira.

Áhugasviðsgreining með viðtali kostar 8.000 kr.