Fræðslustjóri að láni

Hjá Mími er boðið upp á öfluga þjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki til að efla mannauð með árangur að leiðarljósi. Meðal leiðanna sem eru í boði er verkefnið Fræðslustjóri að láni.
Verkefnið felur í sér að sérfræðingur í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun hjá Mími fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, gerir greiningu á þörfum þess í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk og útbýr fræðsluáætlun. Þarfagreiningin getur verið hvort sem er fyrir fyrirtækið í heild sinni eða einstakar deildir/svið.
Fyrirtæki þurfa að geta brugðist við breytingum og þróun og vera sveigjanleg bæði í starfsmannahaldi og verkefnum. Til að fylgja þessari þróun eftir og til að ná góðum árangri þurfa fyrirtæki að laða fram það besta hjá starfsfólki sínu á hverjum degi.
Það er áskorun fyrir mörg fyrirtæki að kortleggja fræðslu og fræðsluþörf og koma í þan farveg sem gagnast jafnt fyrirtækinu sem starfsfólkinu. Markmið verkefnisins Fræðslustjóri að láni er að leggja til leiðir sem setja fræðslumál fyrirtækisins í markvissan farveg sem styður við starfsþróun og með árangur í rekstri að leiðarljósi.

Leit