Dyravarðanámskeið Mímis er hagnýtt nám sem styrkir þig í starfi og veitir þér réttindi* til að starfa sem dyravörður. Þetta er tækifæri fyrir þig til að efla þig í öryggisgeiranum með faglegri þekkingu.
*Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út dyravarðaskírteini.
4. feb 2026 - 31. maí 2026
Þetta námskeið fyrir dyraverði er haldið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu sem tryggir áreiðanleika. Námskeiðið er hannað til að styrkja þig í starfi á fjölbreyttan hátt.
Til að útskrifast og öðlast réttindi sem dyravörður er nauðsynlegt að ná 80% mætingu. Þetta tryggir líka að þú fáir sem mest út úr náminu og sért vel undirbúin/n/ð fyrir starfið.
Námskeiðið er ætlað starfandi dyravörðum og öllum þeim sem hyggjast starfa við dyravörslu.
Auk þess er námskeiðið hentugt fyrir:
Starfsfólk hótela sem vill auka vitund sína og færni á sviði öryggismála.
Fólk sem starfar við öryggisgæslu í verslunum og fyrirtækjum og vill efla færni sína í öryggismálum.
Að námi loknu getur þú sótt um dyravarðaskírteini á vef lögreglunnar. https://logreglan.eydublod.is/Forms/.
Það er hægt að sækja um bráðabirgðaskírteini strax þegar þú hefur skráð þig á námskeið. Það auðveldar þér að byrja fyrr að starfa sem dyravörður.
Til viðbótar við námskeiðið þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að geta sótt um skírteini:
Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800