4. feb 2026 - 31. maí 2026

Fjölbreytileiki í íþróttakennslu

Tveggja daga faglegt námskeið fyrir íþróttakennara í grunnskólum

Viltu endurnýja og stækka verkfærakistu þína með nýjum og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem auka gleði og árangur nemenda þinna í íþróttum?

4. feb 2026 - 31. maí 2026

Kennt er tvo daga frá 9:00–14:30
Íþróttasalur Melaskóla
Íslenska
10 klst.
Verð80.000 kr.

Zita Rézné Zádori

zita@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur ogutanumhald

Námskeiðið er fyrir íþróttakennara í grunnskólum sem vilja læra nýjar og fjölbreyttar kennsluaðferðir sem hvetja til þátttöku allra nemenda og auka gæði íþróttakennslunnar.

Á námskeiðinu lærir þú:

  • fjölda nýrra leikja og æfinga fyrir aldurshópinn 6-16 ára
  • hagnýtar kennsluaðferðir í íþróttagreinum (körfubolta, handbolta, fimleikum)
  • aðferðir til að aðlaga æfingar að ólíku getu- og áhugasviði nemenda
  • um fjölbreytta notkun áhalda (húllahringir, baunapokar, sippubönd o.fl.)

Að auki færð þú:

  • fjölbreyttar hugmyndir að eltinga- og skotleikjum
  • tækifæri til að skiptast á reynslu og hugmyndum við aðra kennara
  • bækling með öllu efni sem kennt er á námskeiðinu

Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

Íþróttakennara á grunnskólastigi (1.-10. bekkur)

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit