Á námskeiðinu heldur þú áfram að bæta við íslenskuþekkingu þína. Þú eykur fjölbreyttan orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á ýmsan hátt. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
29. jan 2026 - 31. maí 2026
Námskeiðið Íslenska 5 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 4 með góðum árangri.*
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Námskeiðið er einstaklingsmiðað að vissu marki, byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, sem og hópavinnu nemenda. Fjarnám krefst meira sjálfstæðis frá nemendum í námi. Námskeiðið er að hluta til á netinu með kennara og að hluta til sjálfsnám með stuðningi kennarans.
Íslenska 5 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Þú getur skoðað rammann betur hér.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Allt námsefni er rafrænt. Heftið Íslenska fyrir 5. stig er notað auk aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3 og 4 (160 klukkustundir) eða sambærileg þekking. Á fimmta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Námskeiðið hentar fólki sem vill meira sjálfstæði í námi, er með grunnkunnáttu í tölvunotkun og aðgang að tölvu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.
Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800