Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og öruggu skref í að læra íslensku. Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra tungumálið. Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi. Á námskeiðinu færð þú einnig fræðslu um íslenskt atvinnulíf sem er góður undirbúningur fyrir þátttöku á vinnumarkaði. Námskeiðið er í boði fyrir ólíka tungumálahópa þar sem kennarinn talar tungumál nemenda.
9. feb 2026 - 31. maí 2026
Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Vestibulum id ligula porta felis euismod semper. Morbi leo risus, porta ac consectetur ac, vestibulum at eros. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Cras justo odio, dapibus ac facilisis in, egestas eget quam.
Námskeiðið Íslenska og atvinnulíf er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum. Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.
Námskeiðið skiptist í 42 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundum af fræðslu um atvinnulífið, alls 58 klukkustundir.
Íslenskunámið er byrjendanámskeið í íslensku á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum linkur hér . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. https://fraedslugatt.is/islenska-fyrir-alla-allt/
Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.
Námskeiðið er kennt bæði fyrir blandaða hópa og sérstaka hópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins, en þau eru: enska, litháíska, pólska, spænska og portúgalska, rússneska, úkraínska og víetnamska.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
**Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla sig í góðum samskiptum. Þátttakendur þurfa að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.
Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800