27. jan 2026 - 31. maí 2026

Íslenska talþjálfun 3-4 (A2.1-A2.2)

Á námskeiðinu nærð þú enn betri tökum á að skilja og tala íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun byggir þú upp öryggi í að tjá þig reiprennandi á íslensku, bæði í samtölum og frásögn.

27. jan 2026 - 31. maí 2026

Höfðabakki 9
Íslenska
20 klst.
Verð36.800 kr.

Victoria Snærós Bakshina

victoria@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Afslappað og hlýlegt andrúmsloft sem býður öll velkomin!
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska talþjálfun 3-4 er sérsniðið fyrir þig sem vilt ná betri tökum á margvíslegum samskiptum á íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á fjölbreytt verkefni og æfingar sem þjálfa framburð, samræður, málfræði og setningagerð.

Íslenska talþjálfun 3-4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1-A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda tryggð svo að íslenskunámið verði árangursríkt og skemmtilegt.

  • Þjálfa tal á fjölbreyttan hátt: Við leggjum áherslu á talþjálfun og samskiptafærni sem hjálpar þér að tjá þig hiklaust í fjölbreyttum aðstæðum. Þú æfir jafnt formlegt sem óformlegt tal í samtölum, umræðum og frásögnum.
  • Skerpa á íslenskum framburði: Réttur framburður er æfður út frá þjálfun í skilningi og  flæði í samskiptum.
  • Auka sjálfstraust þitt í að tala íslensku: Þú byggir upp aukið sjálfstraust til að nota íslensku í öllum mögulegum aðstæðum.
  • Þjálfun í að nota málfræði: Flóknari málfræði er skoðuð og dýpkuð í tengslum við talæfingar og fyrri kunnáttu nemenda.**
  • Fá ráðgjöf um næstu skref: Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.

**Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta. Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á auðskiljanlegri íslensku og tekið þátt í einföldum umræðum. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

  • Ókeypis stöðumat fyrir skráða nemendur: Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Mætingarskylda: Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Námskrá: Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: vanessa@mimir.is.

Stöðumat í Höfðabakka 9: mimir@mimir.is

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit