Vinnur þú á leikskóla eða í grunnskóla?
Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?
Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi.
Þetta er leið fyrir þig til að efla þig í starfi og skapa ný tækifæri í fjölbreyttu starfsumhverfi með börnum.
28. feb 2026 - 31. maí 2026
Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðin námsbraut fyrir þau sem starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi.
Námið er hagnýtt, tengt skólastarfi og kennt með það að leiðarljósi að styrkja þig í núverandi starfi eða framtíðarhlutverki innan skólakerfisins.
Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:
Að námi loknu útskrifast þú sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi með viðurkennda menntun sem nýtist beint í starfi og styrkir stöðu þína til framtíðar.
Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.
Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.
1.önn
Upplýsingatækni UTN2A05
Uppeldisfræði UPP2A05
Kennslustofan og nemandinn NÁMT2KN05
2.önn
Uppeldisfræði UPP3A05
Þroskasálfræði SÁL3A05
Hegðun og atferlismótun HOA2A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði GHS2A05
Skyndihjálp SKY2A01
3.önn
Fatlanir FTL1A05
Skapandi starf SPS1A05
Samskipti og samstarf SAS1A05
4.önn
Leikur sem náms- og þroskaleið LEN2A05
Barnabókmenntir ÍSL2A05
Þroski og hreyfing ÞRO2A05
Námið er fyrir þau sem starfa í leik- og grunnskólum.
Raunfærnimat: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi í leik- eða grunnskóla getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.
Við hlökkum til að vinna mér þér til að ná markmiðum þínum og eflast í starfi með börnum.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800