26. jan 2026 - 31. maí 2026

Leikskólastarfsfólk – Fagnámskeið 1

Á námskeiðinu er lögð áhersla á tölvuleikni, samskipti og sjálfseflingu. Hagnýtt og eflandi nám fyrir starfsfólk leikskóla sem vill vaxa, læra og blómstra.

26. jan 2026 - 31. maí 2026

Kennt er virka daga frá 8:30-15:30
Höfðabakki 9
Íslenska
70 klst.
Verð32.000 kr.

Sandra Björg Ernudóttir

sandra@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utanumhald

Á fagnámskeiðum Mímis tekur þú þátt í fjölbreyttum verkefnum sem veita þér verkfæri og kunnáttu til að takast á við persónuleg og starfstengd verkefni.

Við bjóðum upp á símenntun sem eflir þig og getur opnað ný tækifæri í lífi og starfi.

Námsþættirnir skiptast í tvo meginflokka sem byggjast hvort tveggja upp fyrir persónulega og starfstengda færni.

  • Sjálfstyrking og samskipti: Efldu sjálfstraust þitt og samskiptafærni.
  • Námstækni: Fáðu í hendurnar skýr og áreiðanleg verkfæri til að læra á skilvirkari hátt.
  • Tölvuleikni: Styrktu faglega og hagnýta þekkingu þína á tölvum og stafrænum lausnum.

  • Uppeldi og þroski leikskólabarna: Dýpkaðu skilning þinn á lykilþáttum í þroska barna.
  • Listastarf með börnum: Fáðu innblástur og aðferðir til að efla sköpunargáfu barna.
  • Fjölmenningarlegur leikskóli: Lærðu að mæta þörfum barna úr fjölbreyttum menningarheimum.
  • Umhverfismennt: Öðlastu þekkingu og færni til að innleiða umhverfisvitund í leikskólastarfi.

  • Fjölmenningarlegur leikskóli
  • Hreyfiþjálfun leikskólabarna
  • Málþroski barna
  • Námstækni og markmiðasetning
  • Næringarfræði
  • Sjálfsefling og samskipti
  • Tölvuleikni
  • Umhverfismennt
  • Uppeldi leikskólabarna

Námið er fyrir þau sem starfa á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs.

Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur mælum við með því að þátttakendur hafi hæfni á a.m.k. stigi A2-B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Ef að þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár má nálgast hér.
  • Starfsreynsla og námið jafngildir allt að 17 framhaldsskólaeiningum. Skólastjórnendur hvers skóla eru ábyrgir fyrir mati skólans á námi frá öðrum fræðslustofnunum.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit