26. jan 2026 - 31. maí 2026

Leikskólastarfsfólk – Fagnámskeið 2

Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi starf og þroska barna. Haltu áfram í hagnýtu og eflandi námi fyrir starfsfólk leikskóla.

26. jan 2026 - 31. maí 2026

Kennt er virka daga frá 8:30-15:30
Höfðabakki 9
Íslenska
70 klst.
Verð32.000 kr.

Sandra Björg Ernudóttir

sandra@mimir.is
Verkefnastjóri

Hvernig er að læra hjá Mími?

  • Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
  • Faglegir og reyndir kennarar
  • Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
  • Fjölbreytt nám við allra hæfi
  • Stuðningur og utanumhald

Á fagnámskeiðum Mímis er lögð rík áhersla á að styrkja persónulega og starfstengda færni. Markmiðið er að efla sjálfstraust þitt og veita þér hagnýt verkfæri til að takast á við fjölbreytt verkefni í starfi. Námskeiðið er tækifæri fyrir þig til að dýpka þekkingu þína og vaxa enn frekar sem fagmanneskja.

Í náminu munt þú kynnast og vinna með:

  • Listastarf með börnum: Fáðu innblástur og aðferðir til að efla sköpunargáfu barna.
  • Innra starf og námskrá leikskóla: Dýpkaðu skilning þinn á skipulagi og markmiðum leikskólastarfsins.
  • Íslenskukennslu: Fáðu góð ráð varðandi íslenskukennslu fyrir börn.
  • Þroska barna: Lærðu um helstu þætti í þroska barna til að geta mætt þörfum þeirra enn betur.
  • Slysavarnir: Fáðu faglega og hagnýta þekkingu á öryggis- og slysavörnum.

Einnig er farið í heimsóknir í leikskóla til að fá verðmæta innsýn í og kynnast starfsemi þeirra.

  • Færnimappa
  • Heilsuefling
  • Heimsókn í leikskóla
  • Innra starf í leikskóla
  • Íslenska fyrir tvítyngd börn
  • Líkamsbeiting og vinnuaðstaða
  • Listastarf með börnum
  • Námskrá leikskóla
  • Þroski leikskólabarna
  • Slysavarnir

Námið er fyrir þau sem starfa á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Athugið: Í undantekningartilfellum er heimilt að taka inn í námið starfsfólk á aldrinum 18-20 ára ef það er í fullu starfi.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs.

Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Námið er kennt á íslensku. Til að taka þátt í náminu er mælt með að þú hafir hæfni á a.m.k. stigi A2–B1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Ef að þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.

Undanfari þessa námskeiðs er Fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk leikskóla.

Frekari upplýsingar:

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár má nálgast hér.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang info@mimir.is

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit