Samfélagstúlkanám Mímis er hagnýtt nám sem styrkir stöðu þína á vinnumarkaði og opnar dyr fyrir nýjum tækifærum.
4. feb 2026 - 31. maí 2026
Í samfélagstúlkanáminu færð þú fræðslu, þjálfun og fjölbreytt verkfæri til að sinna samfélagstúlkun á faglegan og árangursríkan hátt. Samfélagstúlkur miðlar merkingu milli aðila sem ekki tala sama tungumál án þess að taka afstöðu til málefnisins. Í náminu lærir þú um hlutverk, ábyrgð, verklag og viðfangsefni túlka. Að auki færð þú fræðslu um íslenskt samfélag og helstu stofnanir þess og færð þjálfun í að kryfja álitamál og að túlka við mismunandi aðstæður.
Samfélagstúlkur túlkar samskipti milli fólks og opinberra stofnana víðs vegar í félags-, mennta- og heilbrigðiskerfinu, í félagslegum aðstæðum, í daglegu lífi, á vinnustöðum og hjá félögum þar sem hagsmunir annarra en hans eigin eru undir.
Námið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem hefur góða þekkingu á tveimur eða fleiri tungumálum, menningarheimum og siðvenjum og vill starfa sem samfélagstúlkar og hefur þá hæfni sem þarf til að takast á við alla hluta námsins. Nánari upplýsingar um hæfni má nálgast á vef: https://frae.is/namskra/allar-namskrar/
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa færni á stigi B1.1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þú getur skoðað rammann betur hér.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800