Hefur þú áhuga á að vinna við umönnun en þarft að læra meiri íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!
Umönnunarsmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna við umönnun og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.
Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í umönnunarstörfum.
2. feb 2026 - 31. maí 2026
Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur umönnunarstörfum á Íslandi.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku og hefur mikinn áhuga á að vinna við umönnun.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.
Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa lokið Íslensku 2 eða hafa færni á stigi A1.2 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Þú getur skoðað rammann betur hér.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang info@mimir.is
Sími 580 1800